Fimmtudagur, 8. janúar 2009
Eru Ísraelar að hunsa alþjóðarlög um stríðsglæpi?
Ísraelar samþykktu að leyfa S.Þ um að koma hjálpargögnum til þurfandi Palestínumanna á Gaza svæðinu í gær og höfðu um það mikla fréttatilkynningu. Hinsvegar þá gerir IDF árásir á flutningalest S.Þ vísvitandi um að hjálpargögn væru um að ræða. Hér eru augljóslega brot á genfarsáttmálanum um árásir á óhlutdræga aðstoðarmenn.
Ísraelar hafa drepið um 45 starfsmenn S.Þ eða Rauðakrossins sem vinna sjálfboðavinnu á Gaza svæðinu.
Ísraelar hafa drepið 715, þarf af yfir 200 börn og sært yfir 3000 manns.
Ísralar hafa misst 11 manns og 7 af þeim féllu fyrir þeirra eigin vopnum (friendly fire)
heimild => http://www.reuters.com/article/worldNews/idUSTRE5053R720090108
heimild => http://english.aljazeera.net/news/middleeast/2009/01/2009181119551714.html
heimild => http://english.aljazeera.net/news/middleeast/2009/01/2009181482839688.html
heimild => http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=4780
|
SÞ stöðvar flutning hjálpargagna á Gaza tímabundið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Hezbollah tilbúnir í stríð við Ísrael
Hezbollah gagnrýna Ísreal harðlega og segjast tilbúnir að mæta þeim ef þeir ráðast aftur í úthverfi Beirút líkt og 2006 þegar Ísraelar drápu um 1200 manns, aðallega Líbanska borgara.
Hezbolla gangrýnir Egypta fyrir að opna ekki landamæri sín til Gaza. Heimild => http://english.aljazeera.net/news/middleeast/2009/01/200917122215939455.html
|
Mótmæli boðuð við sendiráð Bandaríkjanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. janúar 2009
Ísraelar ráðast á Palestínumenn
Hér er hægt að sjá aljazeera youtube síðu => http://www.youtube.com/aljazeeraenglish
Hér er gott að finna færslur um innrás Ísraela í Palestínu, á twitter frá raunverulegu fólki => http://search.twitter.com/search?q=Gaza+OR+gaza
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. desember 2008
Hagkaup okrar á barninu okkar
Konan mín fór með dóttur okkar í gær í Hagkaup í Kringlunni til þess a kaupa sérstaka dúkku sem dóttur okkar langaði ofsalega mikið í. Dóttir okkar varð 5 ára í nóvember og fékk afmælispeninga sem hún notaði til þessa að kaupa dúkkuna. Þessi dúkka var svo til í Hagkaup í kringlunni á 4.990 KR. Þar sem hún var keypt.
Í dag fór konan mín svo í Hagkaup í Smáralind til þess að kaupa jólagjafir og þá sá hún nákvæmlega eins dúkku á 3.790 KR. 1200 KR. munur. Ótrúlega ósvífið af sama fyrirtækinu. Ég mun á morgun taka miðann með til Hagkaups í Kringlunni og krefjast þess að fá endurgreiddan mismuninn.
Mæli með að fólk tapi sér ekki í innkaupunum og láti ekki okra á sér! Hér er => Dr. Gunni að skrifa um rándýr leikföng.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. desember 2008
Burt með spillingarliðið!
|
Kjararáð getur ekki lækkað launin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 15. nóvember 2008
Ubunutu linux á íslensku
Lenti í skemmtilegu atviki þegar ég var að uppfæra úr Ubuntu 8.04 yfir í 8.10 þróunarvélina mína með bash skelinni minni frá makkanum. Þar var hafði íslensku þýðingin næstum því skilað sér yfir í skipanalínuna þegar ég var beðinn um að staðfesta uppfærsluna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Ákall til fjölmiðlafólks
Ég fór í starfskynningu hjá RÚV, haustið 2002. þar var mér kennt að þýða fréttir frá www.bbc.co.uk. Flestar fréttir sem koma frá Bretlandi varðandi IceSave eru textaþýðingar eða viðtöl við óháða sérfræðinga.
Hvar eru viðtölin við bresku erindrekana?
Hér á íslandi matar ríkistjórnin fjölmiðlana og koma fram í drottningarviðtölum. Ef erfitt er að mæta og svara fjölmiðlum, setja stjórnmálamenn skilyrði um að sjá spurningalista fyrir fram eða þeir gefi ekki möguleika á viðtölum. Einnig kemur forsætisráðherra ekki fram til þess rökræða á móti öðrum stjórnmálamönnum. Það eru þó undantekningar og þá einna helst dómsmálaráðherra sem getur lítið annað en tekið undir með þeim sem krefjast rannsóknum bankahruninu. Hvers vegna fá stjórnmálamenn frið frá fjölmiðlum á þessum allra verstu tímum?
Framtíð íslands
Er núverandi ríkistjórn hæf til þess að byggja upp nýtt efnahagskerfi, laga ímynd íslands og læra af mistökunum?
Hvers vegna var ekki kosið um lán frá IMF á alþingi og greint frá skilyrðum sem gæt haft áhrif á afkomu almennings til næstu áratugina?
Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera, bjarga krónunni eða taka upp annan gjaldmiðil?
Ef krónan nær sér ekki á strik, hvað stendur þá til boða?
Ábyrgð seðlabankans
Hvers vegna sagði seðlabankastjóri í breskum fjölmiðlum fyrir bankahrun að íslenska hagkerfi gæti stutt íslensku bankana?
Hvers vegna kemst seðlabankastjóri upp með að fara með fleipur eins loforð um Rússalán?
Hvers vegna þarf íslenskt hagkerfi einn yfirmann, tvo seðlabankastjóra og einn aðalhagfræðing á meðan að önnur ríki eins og Bandaríkin þurfa bara einn seðlabankastjóra?
Ábyrgð stjórnmálamanna
Hvaða stjórnmálamenn eiga hluti í bönkunum eða fjármálafyrirtækjum?
Hvaða stjórnmálamenn eiga ættingja sem starfa í bönkunum, fjármálaeftirlinu og seðlabankanum?
Hvaða stjórnmálamenn hafa setið í stjórnum bankana, í stjórn fjármalaeftirlitsins og seðlabankanum?
Hvar eru peningarnir?
Hvar eru 9 billjónirnar sem íslensku bankarnir skulda, hér væri verðugt verkefni fyrir íslenska rannsóknarblaðamennsku að rekja peningaslóðir bankana.
|
Stoltenberg ræddi um Ísland við Brown |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
N1 bensínhækkun
|
Eldsneyti hækkar hjá N1 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Tryggingakerfi dauðans
Horfði á Sicko í eftir Michael Moore, kvikmynd sem ég hafði lengi ætlað mér að sjá. Ég er sjálfur veikur heima þannig kvikmyndin smellpassaði við tilveru mína. Michael Moore er frábær kvikmyndagerðarmaður sem nær því að koma frá sér ádeilu sinni og oftast á mjög húmorsískan hátt. Hinsvegar þá vantar oft bakhliðina á viðfangsefni Moore's hverju sinni. Enda túlka ég kvikmyndir Moore's sem ádeilu frekar en heimildakvikmyndir.
Ádeilan er einföld, Tryggingarkerfi virka ekki eins og almenn heilbrigðiskerfi. Ástæðurnar eru þar að ríkisstjórnin á að hugsa um skattgreiðendur og tel ég að heilbrigðisþáttur, menntun og samgöngur skipti mestu máli. Ef heilbrigðiskerfið er tekið út úr ríkispakkanum þá verður ríkinu alveg sama um heilbrigði í landinu og ábyrgðin færist yfir á fyrirtækin sem vilja græða peninga fyrir eigendur sína.
Fyrirtækin hagnast á því að fá sem flesta til þess að kaupa tryggingar og þegar kemur að því að borga út tjónið þá vilja tryggingarfélögin borga sem minnst. Þeir sem borga mest fá mest og þeir sem borga ekki fá samt ekki neitt. Þeir sem borga en eiga ekki mikinn pening fá synjun. Fórnarkostnaður er borgaður með samningum við þá sem fara í mál við tryggingarfélagið.
Hér á íslandi búum við ekki við alveg slíka martröð en við höfum búið til óværu sem er tannlæknakerfið í heilbrigðisgeiranum. Tryggingarnar sem ríkið borgar eru í engu samræmi við hvað tannlæknar á einkareknum tannlæknastofum eru að rukka. Tryggingarnar ná einnig aðeins til barna undir 18 ára. Þannig að margir fullorðnir hafa ekki efni á því að fara til tannlæknis. Þetta hefur gert það að verkum að maður sker fyrst niður tannlæknakostnaði þar sem það kostar u.þ.b. 10.000 - 15.000 kr. að fara í skoðun. Ef tannlæknirinn bókar tíma fyrir viðgerð er nokkuð víst að sá tími mun kosta a.m.k helmingi meira. það er sem sagt of dýrt fyrir láglaunafólk að eiga heilbrigðar tennur. Hvers vegna eru tannlækningar og tannheilbrigði ekki hluti af heilbrigðiskerfinu eftir 18 ára aldur?
Er núverandi ríkisstjórn að reyna að breyta núverandi sjúkratryggingum í átt að einkavæðingu?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Dexter
Hér kæmi hinn truflaði Dextir Morgan að góðu gagni gegn þeim sem smjúga í gegnum réttarkerfið. Venjulegur maður hefði líklegast hætt akstri eftir slíkt slys en að vera tekinn 9x fyrir umferðarlagabrot eftir slysið er ófyrirgefanlegt.
það er aðeins einn einstaklingur með nafninu skráður á Íslandi í þjóðskrá og ef nafninu er googlað þá má kemur upp myspace síða í fyrstu niðurstöðu.
|
Árs fangelsi fyrir manndráp af gáleysi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)


